Nú er það ákveðið…

… við rænum Soffíu frænku… eða ekki.

Alla vega, sá sem ég er að leysa af hefur verið útskrifaður og er sprækur sem lækur. Því er ljóst að veru minni hérna á Sjávar Örygginu (Sea Safety) er lokið. Eftir að þetta varð ljóst brutust út mikil fagnaðarlæti hérna um borð og eru hátíðarhöld boðuð út túrinn.

En hvað verður þá um ræfilinn mig? Nú eru hverfandi líkur á að ég fari á Sjávar Flugmanninn (Sea Pilot) enda vildi ég síður fara á það eftirlauna siglingakerfi sem þar er boðið uppá (1 mánuður um borð, 2 í fríi). Það var nefnilega að losna framtíðar staða sem er mér samboðin á Sjávar Sjóaranum (Sea Sailor) og allar líkur á að ég dagi uppi þar. Fáránlegt nafn reyndar á skipi því ég hélt að sjóarar almennt væru alla jafna til sjávar en ekki sveita. Að vísu er verið að vinna í því að bæta við einu skipi og ég er auðvitað öflugur kandídat í að taka það skip upp á mína arma.

Ef svo fer að ég enda á Sjóaranum síkáta þá verður næsta frí hálf endasleppt. Ég fer af hér þann 6. apríl og beint til Stokkhólms í 2 daga. Þá mæta tvíbbarnir mínir á staðinn og ég eyði páskunum með þeim í litla Írak (Södertalje). Þar er meirihluti íbúa frá Írak en maður ætti ekki að fá heimþrá því aðal verslunarmiðstöðin í pleisinu heitir Kringlan svo ég á ábyggilega eftir að eyða miklum tíma í verslunarleiðangri… eins og mér er von og vísa.

Ég kem því ekki heim fyrr en annan í páskum (13. apríl) og ef Sjóarinn verður ofaná fer ég þar um borð 16. apríl. Þá hef ég sumsé bara 2 daga til að flytja í nýju íbúðina áður en ég held aftur á sjó. En þá verð ég líka kominn á fasta rútínu með 4 vikur um borð og 4 í fríi.

steini posted at 2009-3-24 Category: Almennt bull

10 Responses Leave a comment

  1. #1Guðmundur St. @ 2009-3-28 01:06

    Líst vel á það að ræna Soffíu. Nei annars það reyndist nú ekkert sérlega vel. Vona bara að óskir þínar gangi eftir um mannsæmandi siglingaplan.

  2. #2Sverrir @ 2009-3-28 23:29

    Þetta er auðvitað bölvað þrælahald hálft ár í landi og hálft ár á sjó og tali maður nú ekki um allar millurnar sem þú færð fyrir þetta hálfa ár á sjó.
    Ég þarf að vinna allt árið fyrir mínum millum nær allt árið, rétt næ að skjótast með hundleiðum í eina og eina heimsálfu í sumarfrí (launalaust).
    Verður þórður ekki mættur á svæðið til að hjálpa þér að koma þér fyrir áður en þú ferð út aftur í þetta þrælahald?

  3. #3anna @ 2009-3-31 19:15

    Það er nú ekki amalegt að koma til Södertälje. Ég bjó þar einu sinni í heilt ár. Reyndar er stór hluti íbúanna frá Finnlandi og svo er ágætur hópur frá Tyrklandi líka þarna. Svo geturðu kíkt með rollingana á TomTits (eða Steina tappa).

    Njóttu ferðarinnar :)

  4. #4Sævar @ 2009-4-1 21:36

    Gat nú skeð ! ég fer að kalla þig Frímann og kannski bara flugkappa líka ! alltaf í frí og á flugi.

  5. #5Sverrir @ 2009-4-2 11:43

    Frímann Flugkappi hljómar ekki illa. Allavega betur (og sennilegar en) Steini Stórseilor.
    Eða bara Lalli Landkrabbi. Alltaf eitthvað að kræklast í landi.

  6. #6Sóley @ 2009-4-7 16:35

    ég heyri að þú ert harður KR-ingur, Langar þig ekki að kaupa af mér ársmiða á KR leikina ?

  7. #7Sævar @ 2009-4-7 16:40

    Hann er svo HARÐUR Fjölnismaður að hann er búinn að reyna að fá nafnið sitt skrá í símaskránna sem KRingur í fjödamörg ár :P en ég benti Sóley á að tala við þig

  8. #8steini @ 2009-4-11 00:12

    Ég færi aldrei að láta mitt góða félag missa af aurunum við að selja mér inn á völlinn!!!

    Svo er ég enginn helv… Fjölnismaður… þó svo ég gangi um alla daga núna í peysu merktu því ágæta félagi og sé nánast fluttur aftur í þeirra hverfi.

  9. #9steini @ 2009-4-11 00:14

    Og Anna, ég var að spá í að fara með ormana á Tom Tits þangað til ég komst að því að Tits staðurinn hefur ekkert með túttur eða súlur að gera

  10. #10anna @ 2009-6-3 06:35

    Ertu ekki löngu búinn að ræna Soffíu frænku? Kominn tími á nýja bloggfærslu!

Leave a Reply

(Ctrl + Enter)