Úllen dúllen doff

Kominn tími á enn eina færsluna.

Ég hafði það af í lok frísins að moka öllu út úr íbúðinni og skila henni, svo núna er ég á vergangi. Það er auðvitað tóm lýgi því ég hafði það náðugt hjá mömmu gömlu þangað til ég fór á sjóinn á mánudaginn. Sá dagur var frekar langur, því fyrir utan þessa áráttu í Hundleiðum að vera að láta mann rassskellast þetta á milli landa um miðjar nætur hafði skipið komið seint inn svo við áttum eftir að taka vatn, olíu og fleira smálegt. Lentum líka í smá bileríi sem ég ákvað að láta gera við áður en við færum út, svo ég mátaði flest allar bryggjur í Tananger og fór ekki út fyrr en undir miðnætti.

Eftir að ég kom út á sjó hefur lífið svo gengið sinn vanagang. Æfingar daglega en að öðru leyti hefur EKKERT verið að gera. Það hefur ekki verið eitt “near standby” þar sem við þurfum að koma inn fyrir 500 metra svæðið umhverfis pallinn. Hápunktur dagsins hefur alltaf verið þegar konan á pallinum með sætu röddina kallar mig upp til að láta mig vita að þyrla dagsins sé á leiðinni. Þá fæ ég að vita uppfærðan fjölda á mannskap á pallinum. Æsispennandi.

Annars hef ég haft nóg fyrir stafni. Er búinn að róta pappírum fram og aftur, ruslast í sjókortum, skamma mann og annan, klifra niður í tanka og lesa eina bók. Svo er ég búinn að éta helling af lakkrís og drekka kaffi eins og enginn sé morgundagurinn. Ég skil ekki afhverju hásetinn reynir alltaf að forðast að vera uppi með mér á vaktinni.

steini posted at 2009-3-13 Category: Almennt bull

Leave a Reply

(Ctrl + Enter)