Óli Jó

Allt er breytingum háð. Kompaníið hringdi í mig á dögunum og spurði mig hvort ég væri ekki fáanlegur til að fara annan afleysingatúr á Sea Safety. Ég sagði auðvitað já, enda almennilegur með afbrigðum. Reyndar er ég mjög ánægður með að fara aftur þangað, fínt skip og brilljant áhöfn. Ekki skaðar svo að launin eru hærri þar (1/1 sýstem í staðinn fyrir 1/2). Ég fer því út 9. mars og verð til 6. apríl. Kem þá beint inn í páskana og get því farið með tvíbbunum mínum til Stokkhólms hvar þeir eru að fara að keppa í körfu yfir páskana. Ég get reyndar ekki sagt að ég hlakki til að eyða heilli viku í Svíþjóð… en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín.

En framhaldið er á huldu eftir það. Ég er auðvitað ráðinn til fyrirtækisins svo ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af neinu, ég bara veit ekki hvar og hvernig ég dett inn í rútínuna.

Ég fór síðan á stúfana að athuga með íbúð á leigu. Þessi sem ég er í hefur hækkað mikið svo hún er ekki svo ofurhagkvæm lengur auk þess sem hún er full lítil og að auki í miðju Valshverfinu. Ég fann þessa fínu 4. herbergja íbúð í Borgahverfinu í Grafarvoginum, rétt hjá strákunum mínum. Það þýðir að ég þarf ekki lengur að leika strætó á milli Hlíðanna og Grafarvogsins 20 x á dag í skóla æfingar etc. Auk þess eiga strákarnir þá að geta verið með félögunum þegar þeir eru hjá mér. Nú bíður mín því að flytja út úr íbúðinni minni og koma draslinu í geymslu. Þegar ég kem svo heim eftir páskana flyt ég beint inn í nýju íbúðina.

p.s. fyrirsögnin hefur auðvitað ekkert með ekki neitt að gera

steini posted at 2009-3-1 Category: Almennt bull

4 Responses Leave a comment

  1. #1anna @ 2009-3-1 15:58

    Ertu virkilega að segja okkur að þú búir fyrir austan læk og hafir gert það í langan tíma?
    En það er gaman að sjá að þú ert yfirfullur tilhlökkunar að skreppa heim til Stokkhólms um páskana. Bara verst að ég kemst ekki með því ég er á vaktinni um páskana.

    Þetta svar mitt hefur auðvitað ekkert með fyrirsögnina að gera.

  2. #2Thordur @ 2009-3-1 16:44

    Ehhh… uuu… hmmm…. Vona svo innilega að þú sért ekki að flytja upp á fjórðu hæð. Held að ég eigi pantaðan tíma í fótsnyrtingu einmitt þennan dag.

  3. #3Steini @ 2009-3-2 09:30

    Ég auðvitað dauðskammast mín fyrir að hafa búið öfugu megin við læk allan þennan tíma, en KR flaggið blakti í svefnherberginu til að gleyma ekki upprunanum… alla vega þangað til ég tók það um borð í Haukinn þar sem því var slitið upp.

    Þórður, þetta er önnur hæð svo meira að segja þú ættir að ráða við það. Mér sýnist líka á öllu að ég hendi meira og minna öllum mubblum svo þetta verður létt verk og löðurmannlegt. Þú sleppur alla vega við að bera niður af fjórðu.

  4. #4Sverrir @ 2009-3-2 21:47

    Það er langur spotti í bíl að fara frá Vals hverfinu og alla leið upp í sveit, þannig að Þórður ætti að geta dregið andann á milli ferða frá því að bera niður í bíl og upp á II. hæð.
    Til lukku með að vera fluttur í sveitina.
    jövlarana svenska………svo passaðu þig á sænsku páskaeggjunum.
    Veit ekkert um sænska eggjastokka reyndar.

    Svo eru fánar bara til að flækjast fyrir.
    Svar þetta hefur allt að gera með fyrirsögnina.

Leave a Reply

(Ctrl + Enter)