Enn nýrri póstur

Ég fór til augnlæknis í morgunn til að athuga hvort ég sé hæfur í leiser. Ég var alveg á mörkunum í það í nærsýni, sjónskekkju, stærð hornhimnu og hversu kúpt augun eru. Áður en það verður ákveðið þarf ég víst að mæta eitthvað til að skoða sjónhimnuna og augnbotnana betur. Það er víst eitthvað laust, götótt og eitthvað fleira. Þannig að ég þarf sennilega að mæta í annan leiser fyrst til að stoppa í göt og festa sjónhimnu og svo er hægt að skoða málið. Kemst þó alla vega í leiser, þó ég þurfi að vera með brillur á trýninu eftir sem áður.

Það er alveg með ólíkindum vitlaust að lesa alla spekingana sem koma hver á fætur öðrum í fjölmiðla í kjölfar kreppunnar og manni finnst þeir hver öðrum vitlausari. Í gær var ég að lesa á mbl að verið sé að skoða menntun landans í kjölfar ástandsins því eitthvað hafi klikkað þar. Er ekki ein af rótum ástandsins frekar sú að það hafi verið einblínt endalaust á menntun og þessi óþolandi háskóladýrkun ráðið för? Ungir horgemsar sem skriðu útúr háskólum með hverja gráðuna á fætur öðrum voru settir í að stjórna hlutum á meðan þeim eldri og reyndari var mokað til hliðar og litið á þá sem elliær gamalmenni.

Það væri alla vega vonandi að í framtíðinni væri aðeins meira farið að líta á reynslu fólks, en ekki bara hvursu margar gráður þeir geta slegið um sig með. Alla vega veit ég um fullt af fólki sem er með fullt af gráðum en er svo þvengpípandi vitlaust að ég myndi ekki treysta þeim fyrir að stjórna sjónvarpsfjarstýringu… hvað þá meira.

steini posted at 2009-2-20 Category: Almennt bull

2 Responses Leave a comment

  1. #1anna @ 2009-2-21 00:23

    Það var að sjálfsögðu ekkert að menntun þessa fólks, en stjórnendurnir voru bara líka ungir með vafasamar ferskar hugmyndir. Núna er fjöldi vel menntaðra verkfræðinga komnir á atvinnuleysisskrá, en vandamál þeirra er að þeir fóru beint í bankann að afloknu skólanámi og hafa því enga starfsreynslu

  2. #2steini @ 2009-2-21 15:58

    nákvæmlega, ég var ekki að finna að menntuninni, heldur reynsluleysinu

Leave a Reply

(Ctrl + Enter)