Nýr póstur

Ég verð víst að henda einhverju inn svo að Anna fari ekki í fýlu. Merkilegt samt hvað allir í kringum mig eru orðnir linir í bloggi. Er fésbókin að drepa þennan tjáningarmáta niður?

Ég komst sumsé heim. Hékk reyndar full lengi á flugvöllum í Stavanger og Kastrup. Það er búið að eyðileggja Kastrup. Þar má hvergi reykja lengur. Á dauða mínum átti ég von, en ekki því að land Möggu smóks yrði eyðilagt svona.

Heima er ég svo búinn að skemmta mér við að fara til tannlæknis og láta bora í 2 tennur. Rúnta um á Skodilakk og vera með grislingunum.

Gubba virðist gengin út, svo þar fór síðasta hálmstráið. Einlífi það sem eftir lifir.

steini posted at 2009-2-14 Category: Almennt bull

6 Responses Leave a comment

  1. #1Gubba @ 2009-2-14 17:12

    Auli!

  2. #2Bjorn Asgeirsson @ 2009-2-15 10:57

    gaman að heyra frá þér var farin að hafa áhyggjur af þér….
    annrs allt gott að frétta frá NAM bara helv, bræla þessa dagana 25-30 stiga hiti og rakara en við miðbaug
    til að takast á við svona veður hef ég fundið út að með því að halda sama rakastigi að innan þá er allt í ballans….til þess er CASTLE alveg kjörinn ..
    heyrðu hafðu það svo gott í heimalandi mínu(Norge) …
    því er svo við að bæta að við þökkum guði(samma) fyrir að búa ekki í bananalíðveldinu Íslandi heldur bara í (van)þróuðu afríkuríki….
    kveðja
    Bjorn DeBoer

  3. #3steini @ 2009-2-15 13:36

    Bjössi… ég kem í “kaffi” með haustinu, verður ekki einn litill castle hafður í kæli þangað til? Ég veit ég er að biðja um mikið… en samt

  4. #4anna @ 2009-2-18 10:44

    Það eru bara skemmtanir upp á hvern dag, Skódi og tannsi. Þú hefur ekki látið flengja þig á Lækjartorgi á dögunum líka ?
    Ekkert í ísskápnum en heitt á könnunni.

  5. #5steini @ 2009-2-18 10:52

    Fullur ísskápur og alltaf heitt á könnunni

  6. #6dabbi @ 2010-6-10 23:08

    einlífi er skárra en harðlífi.

Leave a Reply

(Ctrl + Enter)