Steini rausar

Nú er það ákveðið…
… við rænum Soffíu frænku… eða ekki.

Alla vega, sá sem ég er að leysa af hefur verið útskrifaður og er sprækur sem lækur. Því er ljóst að veru minni hérna á Sjávar Örygginu (Sea Safety) er lokið. Eftir að þetta varð ljóst brutust út mikil fagnaðarlæti hérna um borð og eru hátíðarhöld boðuð út túrinn.

En hvað verður þá um ræfilinn mig? Nú eru hverfandi líkur á að ég fari á Sjávar Flugmanninn (Sea Pilot) enda vildi ég síður fara á það eftirlauna siglingakerfi sem þar er boðið uppá (1 mánuður um borð, 2 í fríi). Það var nefnilega að losna framtíðar staða sem er mér samboðin á Sjávar Sjóaranum (Sea Sailor) og allar líkur á að ég dagi uppi þar. Fáránlegt nafn reyndar á skipi því ég hélt að sjóarar almennt væru alla jafna til sjávar en ekki sveita. Að vísu er verið að vinna í því að bæta við einu skipi og ég er auðvitað öflugur kandídat í að taka það skip upp á mína arma.

Ef svo fer að ég enda á Sjóaranum síkáta þá verður næsta frí hálf endasleppt. Ég fer af hér þann 6. apríl og beint til Stokkhólms í 2 daga. Þá mæta tvíbbarnir mínir á staðinn og ég eyði páskunum með þeim í litla Írak (Södertalje). Þar er meirihluti íbúa frá Írak en maður ætti ekki að fá heimþrá því aðal verslunarmiðstöðin í pleisinu heitir Kringlan svo ég á ábyggilega eftir að eyða miklum tíma í verslunarleiðangri… eins og mér er von og vísa.

Ég kem því ekki heim fyrr en annan í páskum (13. apríl) og ef Sjóarinn verður ofaná fer ég þar um borð 16. apríl. Þá hef ég sumsé bara 2 daga til að flytja í nýju íbúðina áður en ég held aftur á sjó. En þá verð ég líka kominn á fasta rútínu með 4 vikur um borð og 4 í fríi.

Úllen dúllen doff
Kominn tími á enn eina færsluna.

Ég hafði það af í lok frísins að moka öllu út úr íbúðinni og skila henni, svo núna er ég á vergangi. Það er auðvitað tóm lýgi því ég hafði það náðugt hjá mömmu gömlu þangað til ég fór á sjóinn á mánudaginn. Sá dagur var frekar langur, því fyrir utan þessa áráttu í Hundleiðum að vera að láta mann rassskellast þetta á milli landa um miðjar nætur hafði skipið komið seint inn svo við áttum eftir að taka vatn, olíu og fleira smálegt. Lentum líka í smá bileríi sem ég ákvað að láta gera við áður en við færum út, svo ég mátaði flest allar bryggjur í Tananger og fór ekki út fyrr en undir miðnætti.

Eftir að ég kom út á sjó hefur lífið svo gengið sinn vanagang. Æfingar daglega en að öðru leyti hefur EKKERT verið að gera. Það hefur ekki verið eitt “near standby” þar sem við þurfum að koma inn fyrir 500 metra svæðið umhverfis pallinn. Hápunktur dagsins hefur alltaf verið þegar konan á pallinum með sætu röddina kallar mig upp til að láta mig vita að þyrla dagsins sé á leiðinni. Þá fæ ég að vita uppfærðan fjölda á mannskap á pallinum. Æsispennandi.

Annars hef ég haft nóg fyrir stafni. Er búinn að róta pappírum fram og aftur, ruslast í sjókortum, skamma mann og annan, klifra niður í tanka og lesa eina bók. Svo er ég búinn að éta helling af lakkrís og drekka kaffi eins og enginn sé morgundagurinn. Ég skil ekki afhverju hásetinn reynir alltaf að forðast að vera uppi með mér á vaktinni.

Óli Jó
Allt er breytingum háð. Kompaníið hringdi í mig á dögunum og spurði mig hvort ég væri ekki fáanlegur til að fara annan afleysingatúr á Sea Safety. Ég sagði auðvitað já, enda almennilegur með afbrigðum. Reyndar er ég mjög ánægður með að fara aftur þangað, fínt skip og brilljant áhöfn. Ekki skaðar svo að launin eru hærri þar (1/1 sýstem í staðinn fyrir 1/2). Ég fer því út 9. mars og verð til 6. apríl. Kem þá beint inn í páskana og get því farið með tvíbbunum mínum til Stokkhólms hvar þeir eru að fara að keppa í körfu yfir páskana. Ég get reyndar ekki sagt að ég hlakki til að eyða heilli viku í Svíþjóð… en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín.

En framhaldið er á huldu eftir það. Ég er auðvitað ráðinn til fyrirtækisins svo ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af neinu, ég bara veit ekki hvar og hvernig ég dett inn í rútínuna.

Ég fór síðan á stúfana að athuga með íbúð á leigu. Þessi sem ég er í hefur hækkað mikið svo hún er ekki svo ofurhagkvæm lengur auk þess sem hún er full lítil og að auki í miðju Valshverfinu. Ég fann þessa fínu 4. herbergja íbúð í Borgahverfinu í Grafarvoginum, rétt hjá strákunum mínum. Það þýðir að ég þarf ekki lengur að leika strætó á milli Hlíðanna og Grafarvogsins 20 x á dag í skóla æfingar etc. Auk þess eiga strákarnir þá að geta verið með félögunum þegar þeir eru hjá mér. Nú bíður mín því að flytja út úr íbúðinni minni og koma draslinu í geymslu. Þegar ég kem svo heim eftir páskana flyt ég beint inn í nýju íbúðina.

p.s. fyrirsögnin hefur auðvitað ekkert með ekki neitt að gera

Enn nýrri póstur
Ég fór til augnlæknis í morgunn til að athuga hvort ég sé hæfur í leiser. Ég var alveg á mörkunum í það í nærsýni, sjónskekkju, stærð hornhimnu og hversu kúpt augun eru. Áður en það verður ákveðið þarf ég víst að mæta eitthvað til að skoða sjónhimnuna og augnbotnana betur. Það er víst eitthvað laust, götótt og eitthvað fleira. Þannig að ég þarf sennilega að mæta í annan leiser fyrst til að stoppa í göt og festa sjónhimnu og svo er hægt að skoða málið. Kemst þó alla vega í leiser, þó ég þurfi að vera með brillur á trýninu eftir sem áður.

Það er alveg með ólíkindum vitlaust að lesa alla spekingana sem koma hver á fætur öðrum í fjölmiðla í kjölfar kreppunnar og manni finnst þeir hver öðrum vitlausari. Í gær var ég að lesa á mbl að verið sé að skoða menntun landans í kjölfar ástandsins því eitthvað hafi klikkað þar. Er ekki ein af rótum ástandsins frekar sú að það hafi verið einblínt endalaust á menntun og þessi óþolandi háskóladýrkun ráðið för? Ungir horgemsar sem skriðu útúr háskólum með hverja gráðuna á fætur öðrum voru settir í að stjórna hlutum á meðan þeim eldri og reyndari var mokað til hliðar og litið á þá sem elliær gamalmenni.

Það væri alla vega vonandi að í framtíðinni væri aðeins meira farið að líta á reynslu fólks, en ekki bara hvursu margar gráður þeir geta slegið um sig með. Alla vega veit ég um fullt af fólki sem er með fullt af gráðum en er svo þvengpípandi vitlaust að ég myndi ekki treysta þeim fyrir að stjórna sjónvarpsfjarstýringu… hvað þá meira.

Nýr póstur
Ég verð víst að henda einhverju inn svo að Anna fari ekki í fýlu. Merkilegt samt hvað allir í kringum mig eru orðnir linir í bloggi. Er fésbókin að drepa þennan tjáningarmáta niður?

Ég komst sumsé heim. Hékk reyndar full lengi á flugvöllum í Stavanger og Kastrup. Það er búið að eyðileggja Kastrup. Þar má hvergi reykja lengur. Á dauða mínum átti ég von, en ekki því að land Möggu smóks yrði eyðilagt svona.

Heima er ég svo búinn að skemmta mér við að fara til tannlæknis og láta bora í 2 tennur. Rúnta um á Skodilakk og vera með grislingunum.

Gubba virðist gengin út, svo þar fór síðasta hálmstráið. Einlífi það sem eftir lifir.

Samningar
Ég verð seint talinn mikill verkalýðs forkólfur. Mér hefur iðullega leiðst barátta verkalýðsforystunnar, enda einhliða málflutningur og mér hefur fundist þessi samtök ákaflega máttlítil. Sérstaklega hefur mér fundist lítið vit í að halda úti þessu batterýi eftir að stíllinn varð að hver eigi að semja um laun fyrir sig.

Sumsé í gegnum tíðina hef ég bara tekið það sem að mér er rétt, brosað og þagað.

Stöðu minnar vegna hef ég þurft að stúdera norska kjarasamninga í þaula undanfarið. Hérna er fólk almennt mun meðvitaðra um stöðu sína og svo mikið að mér eiginlega blöskrar á köflum.

En eitt mega frændur okkar eiga að þeir hafa náð ótrúlegustu hlutum í gegn. Á meðan íslenskir samningar gera ráð fyrir 7,3 mánuðum til sjós á ári, þekkist ekki hér að sigla yfir 6 mánuði. Tíminn er líka takmarkaður sem má halda okkur úti á meðan engin svoleiðis ákvæði eru heima. Ég spurði félagið einu sinni af hverju þeir reyndu ekki að ná siglingatímanum niður í 6 mánuði en þeim fannst engin ástæða til þess þar sem flestir sigldu svoleiðis. Auðvitað er það svo að margar útgerðir sjá hið augljósa hagræði sem slíkt siglingasystem hefur í för með sér. Þessu til viðbótar má bæta við að á meðan við heima erum að auka það að vilja komast í 1/1 kerfi eru raddir háværari hérna að fara í 1/2 kerfi, það er einn mánuður um borð (til dæmis) og tveir í fríi. Hérna er fólk til sjós út af frítímanum, ekki út af áhuga á að fara á mis við lífið. Það sem svo aftur stoppar þetta frá að verða að veruleika er skortur á sjómönnum.

Annað sem vekur áhuga minn er hversu duglegir Norðmenn hafa verið að fá inn alls konar auka sporslur. Undanfarin ár hafa orðið ýmsar breytingar á starfinu sem felur m.a. í sér meiri pappírsvinnu. Fyrir þetta fá menn aukalega borgað. Auka fyrir að vera Security Officer, auka fyrir að vera öryggisfulltrúi osfrv osfrv.

Ástæðan fyrir þessum pistli er sú að báturinn sem á að leysa okkur af svo við komumst í áhafnarskiptin er bilaður og liggur í slipp. Því er alls óvíst hvort við náum að komast heim á mánudaginn. Ef ég ynni fyrir íslenska útgerð væri það eina sem ég fengi í besta falli klapp á bakið og sagt við mig “tough luck”. Í versta falli væri mér sagt að hætta þessu væli. Hérna fæ ég hvern dag, sem ég þarf að kúldrast um borð lengur en planið gerir ráð fyrir, borgaðan þrefalt. Það lætur því nærri að útgerðin þurfið að borga mér hundrað kall fyrir hvern dag sem fer framyfir. Því græt ég það ekkert ef það dregst eitthvað á langinn að ég komist heim.

Svo eru launin annað mál. Ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta yfir því að nettó árslaunin sem ég kem til með að vera á fyrir 4 mánaða vinnu á ári hérna eru hærri en brúttó árslaunin sem ég hafði sem skipstjóri á íslensku skipi fyrir nálægt helmingi meiri vinnu.

Mánudags hugleiðingar… svona á þriðjudegi
Hvað eiga allar helstu, vinsælustu og þekktustu persónur heimsbókmenntanna sameiginlegt? Listinn er ekki tæmandi en til að nefna nokkrar:

Góði dátinn Svejk, Lukku Láki, Ástríkur, Steinríkur, Svalur, Valur, Benni flugmaður, hin 4 fræknu, Dalton bræður, Tinni, Tobbi, Kolbeinn Kafteinn, Væla Veinólína, Ívar Eltiskinn, Prófessor vandráður (já eiginlega allar persónur Tinna bókanna nema Flosi Fífldal), Batman, Superman, Zorro, Prins Valíant, Rambo osfrv osfrv. Svona gæti ég haldið endalaust áfram.

Jú, nánast allar alvöru persónur eru makalausar og einstakar. Mér finnst þetta merkilegt í ljósi þess að flestir höfundar þeirra eru ríg múlbundnir í báða skó og reimarnar meira að segja bundnar saman. Hvað segir þetta manni? Eru það duldir draumar hjá höfundunum að fá að vera einir og sér á báti? Er fólki sem er samspyrnt fyrirmunað að geta gert eitthvað skemmtilegt eða að vera skemmtilegt? Af hverju eru nánast engar skemmtilega persónur í bíómyndum giftar? Segir þetta ekki allt sem segja þarf?

Alveg á hreinu að ég ætla aldrei að breyta mínum hjúskaparháttum og gerast leiðindapúki.

Allt að skýrast hjá mér með heimkomu. Fer beint heim þann 9. eða 10. Um borð í Sea Pilot í overlap 5. mars í eina til 2 vikur (fer eftir því hvað ég er tregur og hvernig stendur á heimferðum á skipinu) og svo fer ég þangað um borð 2. apríl.

Þetta er andskotans ekkert frí sem maður fær.

Tíðindalaust á austur vígstöðvunum
Fengum meil um daginn þar sem okkur var skipað að plokka sjónvarpið niður úr brúnni hið snarasta. Einhver útgerð sem hafði verið að missa verkefni vegna sjónvarps í brúnni. Þegar ég var búinn að lesa meilinn tölti ég niðurlútur til baka í stólinn minn og viti menn þá hafði sjónvarpið dáið um leið og ég las póstinn. Ég lét útgerðina auðvitað vita samviskusamlega af því að græjan væri dáin og sat svo sorgmæddur næstu vaktir. Ég var svo sem ekkert sár yfir sjónvarpsmissinum, en ég missti rás 2 í leiðinni sem er heldur verra.

Við komumst svo að því að það var straumbreytirinn sem var farinn og skiptum honum út. Ég þarf að láta útgerðina vita af því einn daginn .

Það fór eins og ég reiknaði með. Krónan byrjaði að rjúka upp um leið og ég fór út. Skil ekki að ég fái ekki prósentur frá ríkinu fyrir þetta. En auðvitað var rökrétt að krónan hlyti að hækka, landið stjórnlaust og því engin peningamálastefna og ekkert vitað með framtíðina.

Ég er svo búinn að kaupa mér nýjan bíl. Svona greifi eins og ég getur ekki verið þekktur fyrir að keyra um á gamalli druslu. Gaf stjúpdóttlunni hinn. Ómögulegt að láta hana vera ólétta á harðahlaupum um allt. Já, ég er að verða afi… og ekki orð um það.

Sjó flugmaðurinn
Jæja þá er búið að bjóða mér fast pláss. Reyndar ekki á þessum dalli heldur á Sea Pilot. Nei Anna, ekki Sea Shephard. Ég á að fara þangað 2. apríl svo ég á tveggja mánaða frí þegar ég kem heim eftir hálfan mánuð. Að vísu þarf ég að fara um borð í eina til tvær vikur í fríinu í “overlap” og jafnvel á eina ráðstefnu eða svo, en það er í góðu, held þó alla vega launum á meðan.

Hásetinn minn hefur verið á þessari doríu og skv honum eru bæði plúsar og mínusar við skiptin. Pilot er betra sjóskip, en meira bilerí. Meira að gera í supply þar svo tíminn líður hraðar en þeir vinna fyrir Statoil-Hydro en ekki Marathon svo allt regluverk er miklu stífara. Siglinga sýstemið er líka öðruvísi þar, 4 vikur um borð og 8 í frí. Launin eru því verri en samt talsvert hærri en ég hafði á Hauknum þrátt fyrir að sigla helmingi minna. Ég get samt reiknað með einstaka afleysingatúrum á hinum skipunum til að halda laununum uppi.

En mikið held ég að það eigi vel við mig að vinna bara 4 mánuði á ári.

Af mér er annars að frétta að ég er kominn á minn stað á Alvheimsfeltet í Norðursjónum. Það er búið að öngla pallinn niður, sem tók góðan sólarhring, og við lónum við hann í 7 vindstigum og hálfgerðum skakstri. Margir skipsfélagar mínir grenja svolítið undan veltingnum, en mér þykir ekki mikið til koma miðað við þau skip sem ég er vanur.

En Norðmenn eru auðvitað tómar pissudúkkur.

20 ár
Í dag eru 20 ár upp á dag síðan ég fór fyrst á sjóinn (ekki orð um að ég sé orðinn gamall!!!). Þá réði ég mig sem messagutta á varðskipið Ægi. Reyndar þótti starfstitillinn messagutti ekki nógu fínn svo opinberlega hét það vikadrengur. Ég hef reyndar aldrei skilið hvað er fínna við að vera vika heldur en að vera messa, nú eða að vera drengur í staðinn fyrir gutti.

Fyrsti dagurinn minn til sjós byrjaði heldur fjörlega. Við vorum ekki komnir út fyrir hafnarkjaftinn þegar kall barst frá grænlenskum togara sem átti í vandræðum við 200 mílna línuna svo við brunuðum af stað með þeim hraða sem við réðum við í 12 vindstigum. Það þarf ekki að taka það fram að mitt fallega litarhaft varð fljótlega grænt, svo grátt og loks var hægt að slökkva ljósin um borð í dallinum því svo mikið lýsti af mér. Ég ældi að vísu bara einu sinni en mikið skelfing leið mér illa. Eftir sólarhring var ég orðinn nokkuð sprækur og hef ekki fundið fyrir sjóveiki síðan.

Sá grænlenski afturkallaði beiðnina en við fengum ansi margar svona “fals” beiðnir í þessum túr og hann var óvenju slæmur veðurlega séð. Ég var harður á því þegar ég kom heim að svona vitleysu léti ég ekki hafa mig út í aftur, en þar sem mér var bent á af skipsfélögum mínum að þetta væri aldrei svona slæmt ákvað ég að láta reyna á þetta… og hér er ég enn og sé ekki eftir því.

Við fórum loksins út á opið haf kl 1 í nótt og verðum komnir með pallinn á sinn stað einhvern tíma í nótt. Veðrið er óðum að detta niður og ég held að lærlingarnir tveir sem ég er með séu ekkert ósáttir við það. Litarhaftið á þeim minnir mig ansi hreint mikið á mig fyrir 20 árum síðan.

Starfsmannastjórinn hringdi á frívaktinni minni og talaði við stýrimanninn. Sagði honum m.a. að hann væri búinn að finna fast pláss fyrir mig, en ekki á hvaða skipi, svo ég þarf að bíða spenntur fram á mánudag eftir að vita það. Alla vega geta menn ekki verið óánægðir með mig so far ef það er búið að ákveða að festa mig.

Skítaveður
Það er og er búið að vera skítaveður í Norðursjónum… sem er hið besta mál. Vanalega væri maður ekkert ánægður með það, en vegna veður hefur ekki verð hægt að drösla pallinum okkar á sinn stað, svo við höfum það ósköp huggulegt við að runkast inni á firði. Spáin gerir ráð fyrir að veður fari að skána á fimmtudag og þá á að reyna að koma honum út og við þurfum þá auðvitað að fylgja á eftir eins og hver annar tryggur hundur.

Þetta fjarðarhangs hefur haft í för með sér að við höfum fengið nokkrar ferðir milli palls og lands með varahluti, sem er hið besta mál. Fín æfing í manúveringum og ég er allur að fá tilfinningu fyrir doríunni. Við pallinn þurfum við að liggja kyrrir á meðan hífingar fara fram og það er smá áskorun þegar 2 stórir dráttarbátar liggja við pallinn og dæla annað slagið kraftmiklu skrúfuvatninu á okkur og spýta okkur úr stað. Við bryggjuna liggur svo skip sem við þurfum að leggjast utaná, án þess þó að snerta það. Við erum auðvitað vel útbúnir í að gera þetta, skrúfulega séð, en þurfum að gera þetta allt manjúalt, sem er frekar óvanalegt nú til dags. Stýrimaðurinn hafði á orði að það er búið að vera meira að gera hjá okkur síðustu vikuna en allt árið sem hann er búinn að vera hérna um borð. Samt er þetta afskaplega rólegt og alltaf tími fyrir okkar daglegu æfingar.

Ég var að lesa gamalt fagtímarit þar sem var viðtal við kellingarbelju sem er útgerðarmaður. Þar kvartar hún mikið undan því hvað það séu fáar konur í toppstöðum í skipabransanum. Er svona fólk ekki í neinum tengslum við raunveruleikann? Þrátt fyrir að prósentan á konum í toppstöðum í þessum bransa sé lág, er hún þó margfalt hærri heldur en prósentan af konum í lægri stöðunum í skipabransanum. Væri ekki ráð fyrir þessar femínistakellingar að byrja á að manna svolítið lægri stöðurnar og síðan þegar þær hafa fengið einhverja reynslu og eitthvað vit á bransanum þá fari þær að reyna að koma sér í topp stöðurnar.

Helvítis kellingar.

Gömul vinkona
Í síðasta fríi rakst ég á gamla vinkonu á netinu. Þar sem hún var alltaf ótrúlega flott í gamla daga, fitt og flott og sexý, fór ég að spjalla við hana og endaði á að hringja í gripinn. Eftir smá spjall leyndi sér ekki að það var eitthvað í loftinu og hún vildi ólm fá mig í heimsókn. Mér fannst rétt að láta hana vita að ég hefði nú aðeins elst, svo hérna kemur restin af samtalinu:

Ég: Ég verð nú að vara þig við að hárið er heldur farið að þynnast síðan þú sást mig síðast.

Hún flissar: Það gerir ekkert, gerir þig ábyggilega bara karlmannlegri.

Ég: Svo hefur tönnunum heldur fækkað líka sko.

Hún: hahaha það gerir þig ábyggilega bara meira sexý sko.

Ég: Svo má ekki gleyma björgunarhringnum, ég minni orðið mest á sex baujuna.

Hún: Grrrr þá er bara meira að elska, bara frábært að hafa svona ástarhandföng til að rífa í. Annars hef ég nú líka bætt á mig örfáum kílóum líka á þessum árum….

Þarna skellti ég sko á. Ekki séns að ég vilji láta sjá mig með einhverri helvítis fitubollu.

Vinna
Ég er ennþá inni á firði nálægt Bergen. Að vísu var farið í það í gær að rífa upp akkerin á pallinum í gær (tók allan daginn) og síðan var honum siglt út fjörð með eigin vélarafli og 3 stórum dráttarbátum / akkerisskipum. Við fylgdum síðan á eftir eins og hver annar trúfastur hundur.

Við lentum reyndar í smá vinnu í gær. Fórum undir pallinn og tókum varahluti í land og fórum með aðra um borð í staðinn. Fínt að prófa að vera svona supply bátur og gaman að manúvera undir pallinum. Við erum auðvitað ekki með neitt svona DP fínarí eins og flestir Supply bátarnir hafa til að halda sér á sínum stað, en mér gekk furðu vel að halda mér á réttum stað undir palli á meðan það var verið að hífa. Það verður gaman að sjá hvort það gangi eins vel í 60 metra ölduhæð úti á ballarhafi.

Annars gengur vinnan út á það að vera í standby, þá lónum við í kringum pallinn í 500 metra til 1 sjómílu fjarlægð og erum klárir ef eitthvað kemur uppá. Nú eða við erum í “near standby” en þá erum við innan við fimmhundruð metrana og eigum að vera klárir að henda báti út og pikka upp fólk sem gæti dottið í sjóinn á innan við 8 mínútum. Við þurfum helst að gera það þegar einhver vinna er utan við “borðstokk” á pallinum.

En núna þurfum við að vinna aftur, tómur ófriðu. Reyndar er fínt að við erum á átta og fjögurra tíma vöktum til skiptis svo ég fæ alltaf 8 tíma hvíld einu sinni á sólarhring, enda skilst mér að menn geri lítið annað á þessari doríu en að éta og sofa.

Best að prófa einu sinni enn
Það gengur illa að koma skiljanlegum pósti frá sér, held það hafi eitthvað með uppfærslu á bloggkerfinu að gera… alla vega er best að kenna Sævari um þetta allt saman.

En sumsé ég er búinn að fá nýja vinnu og er núna skipper á standby bát sem heitir Sea Safety hjá lítilli útgerð sem heitir Chriship í norður Noregi.  Báturinn er fjörgamall (á aldur við mig) en í flottu standi. Enda er nægur tími fyrir áhöfnina til að halda dallinum við því við gerum ekkert. Við erum sumsé öryggis skip við borpallinn Deepsea Bergen og erum til taks ef eitthvað kæmi þar uppá. Einnig til þess að stugga frá umferð sem hættir sér of nærri, en sem betur fer reynir víst lítið á hvorugt af þessu.

Tíminn líður því mest við æfingar (eru daglega) og viðhald og svo hjá okkur í brúnni við að runka skipinu fram og aftur til að halda okkur passlega nálægt borpallinum. Ég er reyndar ekki farinn að kynnast vinnunni almennilega því pallurinn kom fyrir helgi inn til Bergen í viðhaldsvinnu og er ennþá fyrir utan Bergen og við að runkast í kringum hann. Það á að reyna að drösla pallinum út á morgunn ef veður leyfir. Þá siglum við út á eftir og liggjum við pallinn næstu 4 vikurnar þangað til kominn er tími til að koma okkur heim.

Það eru 9 kallar um borð og virka á mig sem prýðis kallar. Allt Norðmenn, fyrir utan mig og einn vélstjórann sem er Færeyingur.

Ég fékk hellings valkvíða þegar ég var að manúvera dollunni í gær. Svo margar skrúfur sem maður hefur úr að velja að ég endaði á að láta dallinn bara reka. Við erum með 2 venjulegar skrúfur að aftan, 2000 hp hvor, 500 hestafla hliðarskrúfu að aftan og 300 hp bógskrúfu. Að auki erum við svo með 900 hp azimuth skrúfu sem kemur neðan úr botninum og sem við notum mest þegar við erum að runkast við pallinn. Hún heldur okkur nokkuð vel þar sem við viljum vera svo við þurfum bara rétt aðeins að stjórna hvernig við keyrum afturábak eða áfram.

Hérna um borð eru auðvitað öll venjuleg mannréttindi eins og þráðlaust net og net í brúnni og síðan gervihnattasjónvarp. Í brúnni erum við auðvitað með sjónvarp sem öryggistæki (ég man ekki eftir að hafa heyrt um neitt slys út af því að menn hafi verið að horfa á sjónvarp á vaktinni, en veit um mörg sem hafa orðið útaf því að stýrimaðurinn sofnaði því hann hafði ekkert að gera). Ég sé mest eftir að hafa ekki fengið mér kort til að geta horft á fréttirnar á Rúv á kvöldin, en ég get þó huggað mig við að ég get hlustað á rás 1 og 2 í gegnum hann.

En sumsé þetta leggst vel í mig og launin eru norsk svo þau eru alveg skítsæmileg líka.

Kominn tími á mig að skrifa póst, þó svo að ég reikni fastlega með að ég sé búinn að tapa öllum hlustendum. Það væri gaman að sjá í kommentum hverjir nenna ennþá að leita að mér… og Guðbjörg ég verð ferlega fúll ef þú ert ekki fyrst á dagskrá.

Enívíveis, ég kom loksins í land seinnipartinn í des og er búinn að hafa það ljúft síðan þá. Vera með ormunum mest allan tíman, fyrir utan aðfangadag og gamlárs sem þeir heimtuðu að vera heima hjá sér, sem var gott fyrir þá, sennilega. Ef ég ofnota kommur þætti mér vænt um að vita það. Ég hef oft spáð í því, enda lærði ég aldrei kommuregluna almennilega.

Ég er hættur í vinnunni minni, enda á íslenskum launum. Ef ég get fengið úglenskt djobb þá stekk ég auðvitað í það. Ég er búinn að sækja um eins og skepna, en ef einhver veit um eitthvað þá er vinsamlegasta að segja frá. Ég vil laun í einhverri stabílli mynt, td Zimbabwe dollar, sem er jú stabíll niðrábið

Neitunarvald
Var að lesa á mbl.is að Rússar og Kínverjar hafi beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að SÞ beitti Zimbabwe refsiaðgerðum. Besserwisserarnir á moggablogginu rjúka auðvitað allir upp á afturbífurnar og eru yfir sig bit yfir þessari vitleysu. En hverju halda menn að svona refsiaðgerðir skili? Jú ástandið í Zimbabwe yrði margfalt verra fyrir íbúana, sem ekki er beisið fyrir. Heldur fólk virkilega að karl eins og Robert Mugabe sem segir öllum sem gagnrýna hann að hengja sig fari að beygja sig undir einhverjar svona aðgerðir? Nei, hann fer ekki úr stólnum sinum fyrr en hann er örendur.

Það er samt athyglisvert að það er einmitt SÞ sem bera ábyrgð á því að þessi sami maður situr í þessum stól. Þegar landið hét Rhodesia blómstraði það undir hvítri stjórn en vegna refsiaðgerða og efnahagsþvingana SÞ fór að halla verulega undan fæti og svo mikið að á endanum neyddist Smith til að segja af sér og fela Mugabe völdin. Þvinganirnar voru því byrjunin á þessum hörmungum sem Mugabe fór svo endanlega með á haugana.

Ég las athyglisverða bók fyrir 2 árum sem gerðist einmitt á tímum frelsisbaráttunnar í Rhodesiu. Það var ævisaga bresks hermanns sem eftir að hafa þjónað í bresku SAS sérsveitunum flutti til Zambíu. Var þar að vinna við mannvirkjagerð og fór í fríum yfir til Rhodesiu þar sem hann féll fyrir landi og þjóð. Hann flutti að lokum þangað og þegar það fréttist af bakgrunni hans og því að hann þekkti til í Zambíu var hann ráðinn til leyniþjónustu Rhodesiu. Hann fór ófáar ferðir yfir landamærin þar sem frelsishreyfingar Rhodesiu höfðust við til þess að kála hinum og þessum frelsishetjum og sprengja búðir þeirra í loft upp og helst þannig að þær héldu að hin hreyfingin stæði fyrir því og þannig að egna þær á móti hvor annarri. Þessi bók er hreint með ólíkindum og ótrúlegir hlutir sem þessi kall gerði. En verst var það sem hann gerði EKKI. Hann fékk í tví eða þrígang fyrirmæli um að kála Mugabe og var búinn að koma sprengiefni fyrir og með fingurinn á gikknum en fékk aldrei græna ljósið til að klára verkið því einhver hélt alltaf verndarhendi yfir kallinum.

Á svipuðum nótum. 2006 vann ég í Namibíu eins og landslýð er ljóst. Það land hét áður South West Africa og gekk í gegnum svipaða “frelsisbaráttu”. SÞ hlutuðust auðvitað um málið og af því sem mér sýnist flæktu þeir frekar málin en hitt. En eitt af því fyrsta sem frelsisbaráttu mennirnir fengu í gegn var að landið skyldi ekki kallað South West Africa lengur heldur Namibía og fengu til þess stuðning SÞ. Í dag er því fátt eða ekkert eftir í Namibíu sem minnir á gamla nafn landsins… tja nema eitt, SWAPO eða South West Africa People Organization, sem er stærsti stjórnmálaflokkur landsins og sá hinn sami sem stóð fyrir stærsta hluta frelsisbaráttunnar… og breytingunni á nafni landsins.

Annars er fríið búið að vera fínt. Landsmót Snigla síðustu helgi og afmælismót Óskabarna Óðins helgina þar á undan. Smá útilega og almenn notalegheit. Styttist samt í að ég fari á sjóinn, sennilega uppúr Verslunarmannahelgi.

Góður
Mér finnst þessi færsla hérna alveg dásamleg snilld.

Júróvisjón
Mér finnst íslenska júróvisjón lagið æði. Hef reyndar aldrei heyrt það almennilega en það vekur upp gamlar og góðar minningar. Einu sinni lenti ég nefninlega í því að fyrir slysni og tóma óheppni að það duttu nokkrar bláar myndir inn á tölvuna hjá mér. Til að vera politically correct ætti ég auðvitað að sverja svoleiðis af mér, en ég er auðvitað sannur karlmaður svo ég viðurkenni alveg að ég er mikill áhugamaður um porn. Ég er reyndar dottinn svolítið útúr bransanum svo einu stjörnurnar sem ég þekki með nafni eru Ginger Lynn og Jenna Jameson.

Nema hvað, einu sinni var inni á tölvunni minni ágætis ræma sem hét party eitthvað. Það var upptaka úr kvennapartýi með nokkrum karlkyns strippurum sem endaði vel. Þ.e. allir kvenkyns partýgestirnir fóru að slást um að blása í rörin á strippurunum og að fá léttar inntökur. Þessi mynd yljaði mér um hjartaræturnar og sat ég oft stjarfur fyrir framan þessa mynd (ponytail buttplugginn var samt víðs fjarri). Þar sem myndin gerðist öll í E-pillu rave partýi var mjússíggin auðvitað öll í samræmi við það… eins og júróvisjon lagið íslenska.

Ástæðan fyrir því að ég rifja þetta upp er að ég fór einhverju sinni með tölvuna upp í brú og sýndi vinum mínum Flippunum á vaktinni myndina. Þeir hrifust auðvitað af gripnum og vildu ólmir og uppvægir fá afrit af myndinni. Sjálfsagt mál, enda er ég svo yndislegur alltaf við alla. Til að breyta formatinu á myndinni notaði ég því sama forrit og ég notaði í myndklippingar sem ég var iðinn við á því tímabili. Þá kom smá púki í mig svo ég tók upp víddjókameruna og tók upp nokkur skot af mér. Fyrsta skotið skeytti ég inní þegar ég hélt að Flippinn væri að ná hámarki, þá birtist mynd af mér að segja honum að henda þessu helvíti sem hann væri með í höndunum. Nokkrum mínútum seinna var annað skot af mér með vinstri vísifingur uppí rananum og hægri hönd á hraðferð upp niður… upp niður… upp niður.  Svo komu álíka skot af mér reglulega út myndina. Því miður kom ég ekki aftur á þetta skip og frétti því aldrei af viðbrögðum… en það er ábyggilega mér að þakka að það er ekki fullt af blindum Flippum að rekast utan í veggi á skemmtiferðaskipum RCCL.

Guðlast
Ég komst að því í kvöld að ég er gjörsamlega óhæfur uppalandi. Frá því áður en grislingarnir mínir voru farnir að tala reyndi hef ég reynt að ala þá upp í réttri trú. Ég hef farið með þær á allar þær trúarlegu samkomur sem við höfum mögulega komist á og alla jafna hef ég haldið að þeir hafi skemmt sér vel á öllum samkomum með mér. Þeir hafa jafnvel tjáð sig um málefni dagsins, hrifist með og tilbeðið sömu guði og ég. Í kvöld brugðust þeir mér svo allhrapalega.

Ég mætti á trúarsamkomu í kvöld og hitti guttana mína þar, því ég var á hjólinu og þeir hjá mömmu sinni þessa vikuna. Þegar ég mætti á staðinn sá ég þá med det samme og kaldur straumur fór um mig. Í stað þess að vera klæddir í samræmi við mig og trúbræður mína voru þeir í GULUM TREYJUM!!! Ekki nóg með það, heldur afneituðu þeir guðum sínum ekki bara einu sinni heldur margoft í gegnum alla samkomuna og vanvirtu að auki föður sinn með því að vera ósammála honum í einu og öllu, rifu kjaft og voru hinir verstu. Það þarf ekki að taka það fram að þeim verður aldrei, aldrei, ALDREI!!! boðið á KR leiki með mér aftur. Reyndar á þetta bara við tvíburana, því Bjarki (minn uppáhalds og ábyggilega eini sonur) var hás eftir að kalla áfram KR allan leikinn og tók undir með mér í einu og öllu og var jafn hneykslaður og ég á bræðrum sínum.

Leikurinn fór svo illa til að magna montið upp í strákkvekendunum því Fjölnir vann leikinn óverðskuldað.

Einn frændi hans Þórðar er mikill og merkur KR-ingur og formaður KR-klúbbsins á tímabili. Auðvitað var hann líka duglegur við að breiða út fagnaðarerindið og gaf því litlum frændsystkinum sínum KR galla í jólagjöf. Sá yngri af þeim varð himinlifandi yfir gjöfinni, rauk á mömmu sína og tilkynnti henni á innsoginu að Danni frændi hefði sko gefið sér bensínstöðvarbol í jólagjöf, enda Shell merkið áberandi á peysunni.

Á morgunn fer ég og geri upp á milli sonanna og kaupi bensínstöðvarbol á Bjarka uppáhald en hinir geta sko verið áfram í þessum Bónusgrísa tuskum.

Að öðrum málum: Ég er óðum að fara í að gera skattskýrsluna mína. Ég hjóla eins og druslan dregur alla daga. Ég er búinn að skrá mig í símaskránna en starfsheitið KR-ingur virðist hafa dottið út í skráningunni svo nú þarf ég aftur að fara að rífast við kellingarnar hjá símaskránni. Ég er búinn að senda þeim meil og býð spenntur eftir svari.

Druslan
Ég heyrði auglýsingu frá Vöku í útvarpinu í dag. Þar bjóða þeir manni að koma og sækja gömlu drusluna manns og farga henni svo og borga manni fimmtán þúsund kall fyrir.

Ég vildi að þetta hefði verið í boði þegar ég var að skilja á sínum tíma. Ótrúlegt vesen sem þetta hefði sparað manni. Bara hringja í Vöku og þeir hefðu fjarlægt “drusluna”, vonandi samt hljóðalaust. Kannski ekki fallegt af þeim að kalla kerlingarnar druslur, en það eru víst ekki allir jafn kurteisir og ég. Ég er nú samt ekki viss um að ég hefði samþykkt að láta farga henni, en samt… fimmtán þúsund kallinn hefði freistað.

Hvernig er það annars, má auglýsa leigumorð í útvarpi í landi þar sem það er stranglega bannað að auglýsa bjór, brennivín og tóbak?