… við rænum Soffíu frænku… eða ekki. Alla vega, sá sem ég er að leysa af hefur verið útskrifaður og er sprækur sem lækur. Því er ljóst að veru minni hérna á Sjávar Örygginu (Sea Safety) er lokið. Eftir að þetta varð ljóst brutust út mikil fagnaðarlæti hérna um borð og eru hátíðarhöld boðuð út [...]
Kominn tími á enn eina færsluna. Ég hafði það af í lok frísins að moka öllu út úr íbúðinni og skila henni, svo núna er ég á vergangi. Það er auðvitað tóm lýgi því ég hafði það náðugt hjá mömmu gömlu þangað til ég fór á sjóinn á mánudaginn. Sá dagur var frekar langur, því [...]
Allt er breytingum háð. Kompaníið hringdi í mig á dögunum og spurði mig hvort ég væri ekki fáanlegur til að fara annan afleysingatúr á Sea Safety. Ég sagði auðvitað já, enda almennilegur með afbrigðum. Reyndar er ég mjög ánægður með að fara aftur þangað, fínt skip og brilljant áhöfn. Ekki skaðar svo að launin eru [...]
Ég fór til augnlæknis í morgunn til að athuga hvort ég sé hæfur í leiser. Ég var alveg á mörkunum í það í nærsýni, sjónskekkju, stærð hornhimnu og hversu kúpt augun eru. Áður en það verður ákveðið þarf ég víst að mæta eitthvað til að skoða sjónhimnuna og augnbotnana betur. Það er víst eitthvað laust, [...]
Ég verð víst að henda einhverju inn svo að Anna fari ekki í fýlu. Merkilegt samt hvað allir í kringum mig eru orðnir linir í bloggi. Er fésbókin að drepa þennan tjáningarmáta niður? Ég komst sumsé heim. Hékk reyndar full lengi á flugvöllum í Stavanger og Kastrup. Það er búið að eyðileggja Kastrup. Þar má [...]